hrabbajons
Skólastuff
06.10.2006 18:52:03 / hrabba

Hrabba segir yfir og út...

Já ég ákvað að breyta aðeins til og er því að bloggar á hrabbison.bloggar.is Maður verður nú að fríska sig aðeins til...Aha:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 12:44:00 / hrabba

Það sem stóð uppúr síðustu helgi....

leynist á hrabbison.blogspot.com



» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 19:16:30 / hrabba

Akureyri,Shitmix og ný vika!

Nú er vika síðan maður kom frá hinni yndislegu Ítalíu... ohh Ítalía, ef þú værir karlmaður þá myndi ég bráðna eins og smjör hjá þér! ég er soldið needy þessa dagana, get ekki gert að því:) Það voru skil síðasta föstudag sem voru mjög áhugaverð...Ég shitmixaði módel á rúmum 3 dögum og var eiginlega bara sátt við útkomuna..Hefði viljað að kennararnir hefðu verið sammála mér en hey..Deili ekki við þær kellur... shitt..! En þegar ég kom heim eftir þessa svæsnu útreið var ég algjörlega búin á því...Svaf í tvo tíma en það var ekki nóg! Ég þurfti eitthvað meira..Eitthvað orkuskot..Þannig að ég fór út, útí bíl, keyrði útá á flugvöll og svo klst síðar var ég komin til Ak, Unaðseyri..Hitti mömmu, Pabba, Siggu frænku og Unu, Mæju og krúttu Inguna mína..Algjörlega það sem maður þurfti... Núna er ný vika byrjuð og nýtt verkefni, við eigum að vinna þetta með krökkum úr viðskiptadeild HR.Við erum með einhverjum 2 stelpum og 1 gaur,..Ekki búin að hitta þau, þetta verður vonandi gaman haha! Hverjum langar samt að hitta mig næsta föstudag og fá sér sushi..MIG LANGAR Í SUSHI!!!! Og djamm...OG Bjór!!! og í nös...Nei djök.. HRABBI NABBI

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 18:44:32 / hrabba

Ciao Italy!

Þá er maður komin aftur frá Ítalíu og var þessi ferð algjör draumur...Ég væri nú alveg til í að eiga þessa villu sem við vorum í, dem alveg geðveikt hús:) Fór ekki illa um okkur 10;) eða 11 þar sem Beta syss er orðin svo stór haha! En núna tekur alvaran aftur við og verð að massa módel fyrir næsta föstudag..nota bene sem ég er ekki byrjuð á8| Ekki neitt! Þetta verður skrautlegt. En annars er Beta syss í nýja Veggfóður blaðinu, myndir úr íbúðinni hennar og krúttinu henni Bríeti, verðið að tékka á því people;)

En annars skelli ég inn myndum við tækifæri...Úff ef ég hef tíma..Love Hrabba

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 16:19:30 / hrabba

Sveitt!

Sjett hvað gærdagurinn var skemmtilegur...Kláruðum fyrsta gegnumgang vetrarins og það var osom! Allir með einhverjar skemmtillegar rómantíkur í gangi og allt flott á mismunandi hátt:) Hópurinn minn var mjög sáttur og vil ég hér með þakka þeim fyrir massa gott teamwork. Þannig að það var ekki annað hægt en að skella sér á djemmið enda rosa LHi party á Hverfis.....Hljómar spes, einmitt. Ég ákvað reyndar að skella mér til vinkonu sem ég var búin að trassa lengi..hélt kannski að við yrðum tvær yfir hvítvíni og myndum svo skreppa nettar í bæin en niiieeeeeee, það var bara crasy party hjá henni, allt fullt af einhverjum súrum verkfræðingum...BYGGINGAVERKFÆÐINGUM....Þá sem ég mun elska að hata og hata að elska í framtíðinni...En ég komst reyndar að því þeir eru bara bestu grey, þessi krútt....Kannski var vodkaappelsínusafinn, hver veit... Að lokum drulluðumst við í bæin og það var gebbað..Mætti reyndar ofurölvuðum ljóshærðum ofbeldissegg sem lamdi mig, ég held að ofbeldisseggurinn hafi bara verið svo glaður að sjá mig að hann hafi ekki ráðið við tilfinningar sínar haha! Svona er þetta bara stundum....Klekk! En svo á ég afmæli á mánudaginn, hversu glataður dagur er það til þess að eiga afmæli á..Djí, ég reikna með hlýjum orðum í minn garð takk fyrir!

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 13:18:57 / hrabba

Hrabbi Lónó

Hey leids and gentsl......Lítið að frétta en samt ekki. Búin að vera að snurfunsa íbúðina mína, orðin aðeins meira hómí...Komnar gardínur hehe yebbs, búið að vanta gardínur í svefnherb mitt í 2 ár..Voru samt alveg rúllugardíns fyrir hehe ég er ekki alveg kreisí....
Skólinn byrjaður á fullt og allt að gerast á þeim bænum, erum í áfanga sem heitir Rómantík og við eigum að hanna ljós..Yupp awesome.
Annars er momí að vera hálfrar aldar gömul á næstunni, sést nú ekki á þessari elsku..Hún fær stóran pakka frá okkur systkinunum....úlala!

En jæja ástarlingar...Ætla að fara að fá mér kaffisopa, það er allavega næst því sem maður kemst að rómantík þessa dagana...vei

Hrabbi


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 15:24:40 / hrabba

Ulla-pjulla hvað tíminn líður hratt!

Fínt að skrifa með svona gríðar góðu millibili því þá getur maður svo sannarlega sagt frá einhverju....
Það er kannski best að byrja á snilldar arki-mega-beib djammi þar sem við dömurnar  á verðandi öðru ári fórum á massa-djamm! Byrjuðum heima hjá mér í súkkulaði fondu og kampavíni, Mohito og hvítvíni (jebb glundrið flæddi útúr kjallarholunni minni, einhverra hluta vegna hljómar það nastí...) En allavegana að þá fórum við auðvitað í bæinn því að hann elskar okkur og komum við á ekki ómerkari stöðum en KB og Barnum..Sá síðarnefndi er ekki vinæll hjá mér þar sem það eru greinilega bara rónadjöflar sem stunda þenna subbustað...Jebb ég var nefnilega mega settlega og sæt standandi óvenju edrú í klósettröðinni þegar ég sé alltíeinu útundan frá mér litíð stöðuvatn á gólfinu, það stækkar og stækka og nálgast sætu gull skónna mína8|, ég hugsa Fokk! Nú hefur sko flætt uppúr klósetinu!..En þá lýt ég upp og sé að gaurinn við hliðina á mér stendur með allar flóðgáttir opnar og er komin hættulega nálægt mér...EEEEEUUWWW, ég öskra náttúrulega á hann að hann sé ógeð og hleyp út, einhverra hluta vegna eltur hann mig en ég er svo heppinn að vinur minn stóð rétt hjá og bjargaði mér frá Mr. PeeAlot Disquistingsen...Jamm stelpur, þarna hafiði það...Eftir þetta var ég náttúrulega að fara heim...En nóg af pissu-fetish...Versló var náttúrulega síðustu helgi og það var alveg klikk....Nenni ekki að skrifa fleiri fylleríssögur þar sem fólk gæti farið að draga upp ranga mynd af mér (ehmm Pahaha)
Ég er samt búin að vera frekar döpur upp á síðkastið þar sem Ólinn minn er farinn til USA og verður þar næstu mánuði:( (snökt)  Sé hann reyndar eftir rúma 25 daga eða svo þannig að ég er ekki farin að örvænta... Ég verð bara svona bachelor á meðan..Lifi á lofti og skyndi-núðlum og drekk bjór..Hmm hljómar bara vel:|

Nenni ekki að vera málefnaleg og fara yfir þenna pistil...Þið fáið það bara rough!

Ciao sugabebs

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 16:49:59 / hrabba

Unaður

Sælar sykurbaunir...Best að rita nokkur vel valinn Mín ástkæra systir og co fóru í gær eftir að vera búin að vera í mánuð hérna á Ak-city, mjög leiðinlegt og pínulitið tómlegt án hennar og Bríetar sem er mesta krúttumús í heimi! En maður hittir þær nú aftur 8 sept og djö verður það geðveikt! Get varla beðið sko..... Gærkveldið var einstaklega sveitt og skemmtilegt, ég ákvað að drífa litlu budduna mína á djammið, budda, þú veist hver þú ert! En við buddan urðum ansi hressar eftir nokkra light og opal skot...Ákváðum því að trylla lýðin niðri í bæ..Ég heldi ég hafi örugglega meitt einhvern á gólfinu þar sem við vorum svo andsetnar...Ég og buddan þar að segja...Svo fórum við, eftir að ég var búin að skalla vegg inná klósetti og eiginlega brjóta í mér tönn, í fótbolta við franska stráka á torginu og ég skoraði hjá pottaplöntu....Næst lá leiðin á Karólínu þar sem ég baðaði Ola Kvanberg gullhömrum fyrir að vera ógeðslega góður á fiðlu......Allt í einu er ég og Budda komnar aftur í bæinn og ég með eiginhandaráritun frá Brad Pitt á handarbakinu....Ég veit ekki fyrr en ég stend fyrir utan húsið mitt með löggu fyrir aftan mig sem segist hafa viljað vera viss um að ég kæmist nú örugglega heil á höldnu heim til mín....Þá var klukkan 6

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 15:21:42 / hrabba

Og það rignir......

Ég hélt að maður ætti að fyllast af andagift á sumrin en í staðin forheimskast maður. Ég held að ég hafi alltaf fullt að skrifa um þegar ég sest niður fyrir framan Apple-löverinn en síður en svo, það er bara svartnætti í hausnum á mér....Ég gæti bloggað um að Ítalía hafi unnið HM og hversu miklir hottís þeir séu en ég hélt með frökkum:( og Zidane er töffari! Það er margt um að vera á Listasumari þessa vikuna og ber þar helst að nefna Heyrnalausuhátiðna sem er í gangi núna...Það er mjög sérstakt að vera með hús fullt af fólki en engan hávaða, bara fólk á fullu með höndunum, einstaka sinnum kemur hrossahlátur...Mjög áhugavert. Í kvöld verður leikritið Píkusögur flutt á táknmáli, gæti verið mjög skemmtilegt að sjá:) Svo er líka nýbúið að opna sýningu Louisu Matthíasdóttur í Listasafninu, hún er ekki smá flott.. Ég er búin að ákveða að fara til Danmerkur, Hollands og Bandaríkjana í vetur, ég myndi fara til Mexíkó líka en það er soldið overt the top sko....Það er svona þegar ástvinir manns ákveða að dreifa sér svona útum allan heiminn..... Æji þetta var nú hálf aum færsla...Love Hrabba

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 14:05:26 / hrabba

Blogga...

Jamm, ég blogga....Ástæðan fyrir því er sú að þessa stundina hef ég nákvæmlega ekkert betra að gera en að blogga. Ég meina, það er sumar og hver nennir að lesa um það að ég hafi verið í sundi áðan? En svona til þess að segja eitthvað þá byrjaði ég í Gravity sem er svona lyftingadæmi þar sem maður er að vinna með eigin líkama, þannig að ég verð fjórfaldur massaköggull eftir sumarið, passið ykkur bara.. Næstu helgi ætlum við gengið í sumarbústað, er sá sumarbústaður staðsettur rétt fyrir utan húsavík þannið að við ætlum að koma með gaddavírskylfur og keðjur ef það kæmi til slagsmála..Maður hefur nú heyrt ýmislegt af þessum húsvíkingum...Kynntist tveim í vetur og þeir eru alveg kolruglaðir..Borða glös og teipa kynfæri....Skil ekki sona.......já

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 12:14:03 / hrabba

Love is in the air....Á listasafninu

Jebbs það er nú ótrúlegt hvað ástfangið fólk getur látið sér detta í hug.....

Þannig var það nú að ég var í vinnunni í gær og var sem sé inná skrifstofu yfirmanns míns (sem er kona ef fólk er eitthvað farið að búa sér til hug-myndir um þetta) Við erum bara að ræða daginnog veginn þegar síminn hringir allt í einu. Í símanum er safnvörður listasafnins, móð og másandi, og segir að núna verði einhver að koma að hjápa sér, þar sem það er fólk að r**a8| í einum að af sýningarsölunum. Það má til gamans geta að sá tiltekni sýningarsalur var herbergi útfrá einum af aðal sýningarsölunum og var búið að teppaleggja það með gæruskinnu..Var þar kassettutæki sem spilaði Njálssögu lesna upp af arabískum manni. Unga parið var semsé ósátt við að verið væri að ónáða sig í miðjum klíðum þannig að safnvörðurinn þurfti aðstoð til að yfirbuga elskendurna.....Sagan segir svo að þau hafi náð að lauma sér út á meðan safnvörðurinn hafi verið að ná í aðstoð.

Já krakkar mínir, manni leiðist ekki í vinnunni minni ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 14:11:30 / hrabba

Mig langar...

MiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangar

MiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangarMiglangar


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 23:13:49 / hrabba

Jæja los lufsos!

Taka tvö ladies and faggies! Nei grín, strákar málið er að ég veit alveg að þið eruð að lesa þetta en commentið aldrei..Sérstaklega einn ljóshærður fír sem er stalkerinn minn, þú veist hver þú ert!!!!

Lífið eftir skólann er búið að vera plain pleasure...Drekka Latte yfir Wallpaper í nýja sófasettinu hjá MA&PA, þau eru uppahálds hjónin mín. ´Svo er ég auðvitað búin að vera að skemmta mér mit Úlaf, er samt komin með smá leið á honum...Við erum búin að vera það mikið saman, euww við erum eiginlega farin að lykta eins....grín, samt ekki.

Málið er að ég var að koma af Kaffi Carólínu og það var reykt svo mikið í kringum mig að ég held að það hafi haft varanleg áhrif á hausinn á mér. Ég byrjaði í vinnunni minni í dag og hún lookar bara vel út...Erum að undirbúa sýningu listmálara sem heitir Rudolf L. Reiter. Munu við hengja upp þrjár ræmu 3x10m með abstrakt olíumálningu og mun hann svo taka þau niður og dýfa þeim í Kröfluhraun og láta þau gerjast þar í ákveðinn tíma. Mun hann að því loknu hengja þau upp aftur og leyfa kröftum náttúrnnar skila sér til áhorfendans!

Já krakkar.....Magic!

----------Hrabba-----------


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 18:07:46 / hrabba

Fokk-fokkedí-fokk!

Já ég var búin að skrifa shit-loads mikið og það bara ákvað að fara í sumarfrí!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3